4.3.2007 | 19:18
Nálykt af lögregluaðgerðum sýslumanna
Ég get ekki orða bundist yfir þeim innheimtuaðgerðum sýslumannsins í Reykjavík og Selfossi og megna nálykt leggur nú um landið. Sýnir okkur betur og betur að það eina verðmæta í huga löggjafans eru peningar. Hér skipta mannslíf engu máli frekar en fyrri daginn þegar peningar eru annars vegar, nær væri að gera þessu fólki kleyft að borga sínar skuldir eða fella þær niður ef þannig stendur á. Allavega virðast misvitrar ákvarðanir löggjafans sem kosta þjóðina ómæld útgjöld ekki skipta neinu máli þegar bæjar/sveitastjórnar eða þingmenn eiga hlut að máli, sama hverju þeir klúðra, þeir þurfa aldrei að axla sína ábyrgð persónulega. Því velti ég því fyrir mér að fenginni reynslu. Hvenær eru mannslíf einhvers virði?
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.